Leita í fréttum mbl.is

Staðgöngumæðrun á Íslandi, hver gæti framvindan orðið?

 

Ég hef velt því fyrir mér hverjar gætu orðið afleiðingar væntanlegrar lagasetningar á Íslandi.  Að athuguðu máli held ég að íslenskar staðgöngumæður verði í byrjun ekki margar. Kannski nokkur tilfelli fyrstu árin, færri en tíu á ári. Og þetta er einmitt það sem löggjafinn gerir ráð fyrir. 

Staðgöngumæður gætu orðið vinkonur og systur, tekjulágar konur af erlendu bergi brotnar sem mun kannski fjölga þegar árin líða og hugsjónakonur sem vilja e.t.v."prófa einu sinni" fyrir kynsystur sínar. Ég tel útilokað að menntaðar velstæðar konur muni leggja þetta fyrir sig. 

Hinsvegar munu lög um staðgöngumæðrun líklega valda því að þetta verður með tímanum talin sjálfsagður meðgönguvalkostur. Og ekki bara fyrir konur sem hafa sjúkdóma í legi eða geta heilsunnar vegna ekki gengið með barn, heldur í raun alla þá sem þess æskja. 

Þetta tel ég vera mikilvægt atriði og grundvöllur þess að við getum leitt líkum að því að staðgöngumæðrun muni breyta samfélaginu í veigamiklum atriðum. Ég held þetta muni ekki gerast strax - en kannski á 5-10 árum og þá komi fram hin hugarfarslegu áhrif laganna.

Af þessum orsökum sé ég fyrir mér þá framvindu að ekki verði nóg framboð á staðgöngumæðrum hérlendis og þá muni fólk leita fyrir sér erlendis til að fá þessa þjónustu.

Þessa staðhæfingu byggi ég á því að fleiri konur munu æskja þessarar þjónustu, vegna ýmissa aðstæðna sem torvelda meðgöngu og ekki síst félagslegra ástæðna sem ekki hefur verið mikið bent á í umræðunni.

Við getum ef til vill séð fyrir okkur konu sem langar í sitt annað eða þriðja barn og vegna vanlíðunar í síðustu meðgöngu ætlar hún að láta ganga með fyrir sig í þetta sinn. Önnur mynd væri af karlmanni sem skilur á besta aldri og missir tengsl við börnin sín eða forsjá forsjá þeirra. Hann leigir sér staðgöngumóður erlendis og tekur barn heim. Þetta hljómar framandlega nú en það er ekki víst það verði það eftir 10-15 ár - ef lögin ná fram að ganga.  

Þá verður staðan sú, að hérlendis verður hún velgjörð en sé leitað utan landsteina mun þurfa að borga fyrir hana. Ekki er hægt að útiloka að einhvers konar undirborðs-greiðsla þróist hér á landi fyrir viðvikið sem muni auka framboð. Mér finnst það hugsanlegt og það verður að minnsta kosti ekki hægt að koma í veg fyrir það. Peningar munu hjá vissum hópi þykja sjálfsagðir fyrir svo stórt viðvik í formi greiðslna inn á erlenda reikninga, gegnum þriðja aðila eða á annan hátt með leyndum hætti. Það er rétt að hafa þetta í huga en ekki sem neina meginreglu.

Engin leið er að banna fólki að leita greiðans erlendis ef löggjafinn heimilar þetta hérlendis en þessi verslun með meðgöngur og leigumæður blasir við sem nýtt alþjóðlegt vandamál í samskiptum ríkra þjóða og fátækra.Það er orðin gríðarleg verslun nú þegar og veltir milljörðum dollara.

Sumir segja að þetta sé verslun með börn. Nákvæmara er þó að segja að staðgöngumæðrun feli ekki í sér beina sölu á barni en ótvírætt erum að ræða sölu á móðurréttinum eða afsölun á honum því samkvæmt venjulegum skilningi ( lagalegum skilingi einnig) er móðir sú kona sem gengur með barnið. Hún er sú sem tengist því gegnum meðgönguna og nærir það við brjóst sér. Nú gæti maður spurt: Er hægt að versla með móðurréttinn? Stríðir það ekki gegn mannréttindum?

Eða ætla menn að fara bakdyraleiðina og breyta skilgreiningunni á því hvað sé móðir? Það blasir við ef litið er á tillögu okkar háttvirtu alþingismanna að breyta einfaldlega skilgreiningunni en þar stendur: 

Í barnalögum, nr. 76/2003, er tiltekið í 5. gr. að móðir barns sem getið er með tæknifrjóvgun skuli teljast sú kona sem elur barnið. Þetta ákvæði getur ekki staðið samhliða heimild í lögum um tæknifrjóvgun til staðgöngumæðrunar enda þarf að tryggja það að móðir barns sem getið er með tæknifrjóvgun geti líka verið önnur en sú kona sem elur það. 

 

Ekki stendur til að spyrja þjóðina hvað henni finnst um þessa róttæku breytingu og enginn bregst við að því er virðist. Spurningin er, vilja menn að samfélag okkar breytist í þessa veruna?

 

Mínar tillögur í málinu eru þessar:   

1. Að bíða með frumvarpið en hefja samráð meðnágrannalönd okkar um hvaða skref séu heppileg í þessu efni. Bæði varðandi fulla staðgöngu innanlands og kaup á slíkri þjónustu erlendis. 

2. Í bili að leyfa hefðbundna staðgöngumæðrun til að koma á móts við þær konur/ pör sem geta nýtt sér hana. Hún er sjálfstakmarkandi og beinist einkum að því að hafa leyfi til að njóta hjálpar frá systur eða vinkonu sem er reyndar markmið frumvarpsins.

3. Að rýmka reglur fyrir venjulega ættleiðingu og setja í hana fjármuni svo hún geti reynst fleyrum raunverulegur valkostur.

4. Að banna fulla staðgöngumæðrun áfram.

5. Banna innflutning á börnum sem eru getin við fullastaðgöngumæðrun í hagnaðarskyni erlendis.

6. Hvetja alþjóðasamfélagið og WHO til að móta sameiginlega ásættanlega stefnu varðandi kaup Vesturlandabúa á fullri staðgöngumæðrun í þriðja heiminum. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórólfur Sveinsson

Góður pistill. Sérstaklega vil ég taka undir það sem þú segir ,,Hinsvegar munu lög um staðgöngumæðrun líklega valda því að þetta verður með tímanum talin sjálfsagður meðgönguvalkostur''. Það er ábyrgðarleysi að horfa fram hjá þessu. Reynslan segir okkur að flest sem er hægt á sviði læknisfræði, það kemur með einhverjum hætti. Því held ég tillögur þína séu skynsamlegar, sérstaklega þarf að huga samstarfi við nágrannalönd okkur um úrræði og leiðir í þessu.

Þórólfur Sveinsson, 1.3.2011 kl. 11:27

2 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Ég er algerlega ósammála. Mér finnst ekki koma neinum við hvort þú fáir einhvern til að ganga með barn svo lengi sem ekki er um nauðung að ræða. Því tel ég mikilvægt að alþjóðlegar reglur komi á um þetta mál eins fljótt og auðið er. Fyrir þriðja heiminn getur þetta verið búbót sem verður til þess að fjölskylda fær þak yfir höfuðið og getur hugsað betur um sín börn. Þá finnst mér þú alveg horfa framhjá rétti barnsins þegar þú segir að börnum sem getin eru við staðgöngumæðrun eigi ekki að fá að vera hjá lífforeldrum sínum. Hvað á þá að verða um þessi börn?

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 1.3.2011 kl. 16:06

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Reglulega góð viðskiptahugmynd væri sú að ræna nokkur hundruð fátækum kerlingum frá fátækum löndum, setja þær í fangabúðir innflytjenda í skógum Evrópu, ekkert munar þar um nokkrar í viðbót við þær sem þar eru fyrir, og selja svo aðgang að maga þeirra. Þetta gæti orðið ný atvinnugrein fyrir þá sem vilja hórast með manneskjur. 
 
Margir hafa þegar fengið þessa viðskiptahugmynd og sett hana í verk. Og hún er ekki geðbilaðri en sú sem haldið er að fólki af fullri alvöru um svona glæpi gegn fávísum.   
 
Velkomin í MATRIX!
 

Gunnar Rögnvaldsson, 1.3.2011 kl. 17:32

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Svo þegar menn vilja skila vörunni þá er hægt að bjóða upp á það sama og hundaeigendum er boðið upp á þegar þeir nenna ekki að hafa dýrin lengur. Það eru til gamlar byggingar fyrir svona starfsemi í Evrópu. Ekkert svakalega gamlar. Gasið kostar ekki mikið. 

Gunnar Rögnvaldsson, 1.3.2011 kl. 18:09

5 Smámynd: Guðmundur Pálsson

Ágætis útópísk lýsing hjá þér Gunnar og skondinn er veruleikinn. Hugmyndir og siðferði flytst til hægt og rólega og fyrr en varir getur maður setið fastur í einhverjum bölvuðum pitt. Tækni sem svo freystandi að hún krefur okkur um að loka öðru auganu fyrir rétti annarra og mannvirðingu hlýtur maður að efast um.

Adda Þorbjörg takk fyrir álit þitt, þú virðist mér amk sammála um að einhverjar alþjóðlega reglur gildi um þetta.

Guðmundur Pálsson, 1.3.2011 kl. 19:25

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir Guðmundur. Mikið er ég sammála þér. 

Þetta er víst ekki útópía hjá mér lengur. Þessi "viðskiptahugmynd" er þegar komin til framkvæmda í Asíu, og eflaust víðar. Þetta var reyndar það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég mér til skelfingar fór að hlusta á gaggið um þetta. Þetta er kjörið tilefni fyrir suma getulausa þingmenn til að selja sjálfa sig - "prófílera sig á".

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.3.2011 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðmundur Pálsson
Guðmundur Pálsson

Heimilislæknir. Málefni og sanngjörn umræða. Á engann skal hallað. gudmundur.palsson@gmail.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband